Smáforrit fyrir starfsfólkVæntanlegt fljótlega í App Store og Google Play
Öruggt og þægilegt vaktakerfi
Skipuleggðu vaktir, fylgstu með mætingu og gefðu starfsfólki þínu yfirsýn yfir eigin vinnutíma — allt á einum stað. Timr er hannað fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda dagleg verkefni og spara tíma.

Tilbúin/n að einfalda vaktaskipulagið?
Ástæðan af hverju ég lagði af stað í þessa vegferð er einföld, ég hef bæði verið starfsmaður og yfirmaður sem hef unnið með Excel sem vaktaskipulag. Þegar ég fór að skoða önnur kerfi sem gætu leyst Excel af hólmi fann ég ekki rétta lausnina. Annað hvort voru sambærileg kerfi of dýr, buðu ekki upp á það sem okkur vantaði eða einfaldlega virkuðu ekki.
Þess vegna bjó ég til Timr. Forrit með einfalda verðskrá, eiginleika sem nýtast öllum fyrirtækjum, bæði stórum og smáum, og einfalt viðmót fyrir stjórnendur sem og starfsfólk.
Eiginleikar
Afhverju Timr?
Timr er hannað til að einfalda vaktaskipulag og vinnutímaskráningu, bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk.
- Vaktarplön
- Sveigjanleg vaktarsnið eins og 2-2-3, 5-5-4 eða sérsniðið. Mörg plön í gangi samtímis.
- Stimpilklukka og tímaskráning
- Yfirsýn yfir alla tímaskráningu starfsfólks. Breyta færslum eða bæta við handvirkt.
- Orlofs- og frídagakerfi
- Sjá frídagabeiðnir og samþykkja eða hafna. Vaktarplanið tekur sjálfkrafa tillit til fríðaga.
- GPS staðfesting
- Tryggðu að starfsfólk stimplast inn á réttum stað með geofencing.
- Tilkynningar og viðvaranir
- Minningar á vaktir, yfirvinnuviðvaranir, gleymd stimplun og fleira.
- Útflutningur gagna
- Flytja út tímaskráningar og launagögn í Excel.
- Vaktabirting
- Búðu til vaktir sem drög og birtu þegar tilbúið. Starfsfólk sér aðeins birtar vaktir.
Verðskrá
Finndu það sem hentar þér
Byrjaðu í dag með 30 daga prufu tímabili. Engin skuldbinding.
Algengar spurningar
- Er hægt að prófa kerfið frítt?
Já, þú getur prófað Timr í 30 daga án þess að gefa upp greiðslukortaupplýsingar. Engin skuldbinding og hægt að hætta hvenær sem er.
- Hversu marga starfsmenn get ég skráð?
Það fer eftir pakkanum sem þú velur. Nettur pakki styður allt að 15 starfsmenn, Þéttur allt að 40, og Allur pakkinn allt að 100. Hafðu samband ef þú þarft fleiri.
- Er til app fyrir starfsmenn?
Já, starfsmannaappið er í boði bæði fyrir iOS og Android. Starfsmenn geta séð vaktir sínar, skráð sig inn og út og fengið tilkynningar um breytingar á vaktarplani.
- Tekur kerfið tillit til íslenskra kjarasamninga?
Já, Timr er hannað sérstaklega fyrir íslenska vinnustaði. Kerfið reiknar sjálfkrafa dagvinnu, yfirvinnu og stórhátíðarkaup í samræmi við íslenska kjarasamninga.
- Get ég skipt um pakka síðar?
Já, þú getur uppfært eða lækkað pakka hvenær sem er. Breytingin tekur gildi strax og verðið er hlutfallslegt miðað við það sem eftir er af greiðslutímabilinu.
- Hvernig virkar GPS innstimplun?
Þegar starfsmaður stempur sig inn staðfestir kerfið að hann sé innan ákveðins GPS-sviðs frá vinnustaðnum. Stjórnandi stillir staðsetningu og leyfilegt svið í stillingum. Ef starfsmaður er utan sviðs er innstimplunin hafnað.